Gagnrýna eigin vinnu!

Nýjum meirihluta í Stúdentaráði finnst vanta kafla um að ekki verði tekin upp skólagjöld við opinbera háskóla í stjórnarsáttmála nýju ríkisstjórnarinnar. Þetta er athyglisvert í ljósi þess að  stærstur hluti þeirra vann beinlínis að því á vettvangi Samfylkingarinnar í kosningabaráttunni að koma mönnum eins og Björgvini G. Sigurðssyni til valda, sem hefur verið talsmaður skólagjalda í framhaldsnámi.

Á þingi í nóvember sl. sagði Björgvin t.d.:

En það kemur að sjálfsögðu til greina að veita heimildir til skólagjaldstöku á einhverjar tilteknar námsgreinar eða framhaldsnám að því uppfylltu að það sé lánað fyrir náminu og jafnræðis til náms þannig að fullu framfylgt.

Bæði formaður SHÍ og lánasjóðsfulltrúi ráðsins hvöttu beinlínis til þess að Samfylkingin yrði kosin út af menntamálunum. Lánasjóðsfulltrúinn lét m.a. þau orð falla í kosningabæklingi Samfylkingarinnar þegar hún var spurð um ástæður þess að kjósa ætti Samfylkinguna, að annars yrði Stúdentaráð að bjóða fram. Einn stjórnarmanna Röskvu í Stúdentaráði var kosningastjóri ungra jafnaðarmanna í kosningunum og því má velta fyrir sér hvort meiri tími hafi farið í að berjast fyrir hagsmunum stúdenta í tengslum við kosningar eða hagsmunum Samfylkingarinnar. Nú er afrakstur þessarar vinnu meirihlutans að skila sér í því að skólagjaldasinnum í ríkisstjórninni hefur fjölgað. En það er svo sem auðvelt að vera vitur eftir á.

Almennt hefur hinn nýi meirihluti látið frábært tækifæri sér úr greipum renna í tengslum við þingkosningarnar með því að sitja nánast með hendur í skauti. Menntamál komust varla á dagskrá fyrir þessar kosningar og lágværar hótanir rétt áður en framboðsfrestur rann út um að stúdentar færu í framboð gerðu ekki mikið fyrir trúverðugleika ráðsins. En hann var svo sem ekki ýkja mikill heldur eftir að kjörnir fulltrúar stúdenta höfðu lýst yfir stuðningi við ákveðinn stjórnmálaflokk umfram aðra.


mbl.is Stúdentaráð HÍ krefur nýja ríkisstjórn um skýr svör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steindór Grétar Jónsson

Úr menntastefnu Samfylkingarinnar:

Stuðla að því að öllum standi til boða gjaldfrjáls menntun frá og með leikskóla til og með háskóla. Tryggja að skólagjöld verði ekki tekin upp í almennu grunn- og framhaldsnámi við opinbera háskóla.

Steindór Grétar Jónsson, 30.5.2007 kl. 16:21

2 identicon

Ég vil taka það fram að minnihlutinn í stjórn stúdentaráðs ítrekaði á stjórnarfundi stúdentaráðs í gær að orðalag ályktunarinnar væri ekki við hæfi. Sáttmálinn væri almennt orðaður og því í raun ekki við hæfi að stúdentaráð HÍ ætlaðist til þess að þar kæmi fram að ríkisstjórnin hefði þar klausu um að skjólagjöld yrði ekki tekin upp í opinberum Háskólum - sáttmálinn hefði þurft að telja mörg hundruð blaðsíður ef ítarlegar áherslur ríkisstjórnarinnar um einstök mál ættu að rúmast þar. Meirihlutinn virðist ekki gera sér grein fyrir að ríkisstjórnarsáttmálinn er rammi utan um fyrirhugað samstarf flokkanna tveggja.

Ég er persónulega á móti því að skólagjöld verðir tekinn upp við HÍ, sama gildir með aðra í minnihlutanum, en orðalag ályktunarinnar var klaufalegt og dregur úr trúverðugleika SHÍ. Ég vona að stúdentar HÍ fari betur með atkvæði sín í næstu stúdentaráðs kosningum HÍ.

Fjóla Einarsdóttir (IP-tala skráð) 30.5.2007 kl. 16:32

3 Smámynd: Þórir Hrafn Gunnarsson

Árni:

 

Ég verð að viðurkenna að ég sé ekki alveg að hinn nýi meirihluti hafi lítið gert til að vekja athygli á menntamálum í þessari kosningabaráttu.  Þó að velferðarmálin hafi verið mest áberandi í kosningabaráttunni þetta árið þá voru menntamál nokkuð stór þáttur líka. Ég man t.d. ekki eftir því að áður hafi verið sérstakur borgarfundur í beinni útsendingu á Rúv eingöngu um menntamál. Ég man heldur ekki eftir því að forsætisráðherra þjóðarinnar hafi áður lagt mikla áherslu á það að afnema þurfi tekjuskerðinguna á námslánum  í setningarræðu sinni á landsfundi stærsta stjórnmálaflokks landsins. Einnig verður að benda á þá staðreynda að sú ákvörðun nýja meirihlutans í Reykjavíkurborg að gefa stúdentum frítt í Strætó næstkomandi vetur hlýtur að flokkast sem hluti af kosningabaráttunni fyrir Alþingiskosningar, það viðurkenna allir óvitlausir menn. En almennt sé þá var það stjórnarandstaðan  semkom með mörg loforð um að bæta úr ástandi menntamála ,og þá einnig háskólamála, á meðan að stjórnarflokkarnir stærðu sig mikið af góðum árangri sínum í þeim málum. Margar greinar voru skrifaðar af talsmönnum og frambjóðenda allra flokka þar sem menn færðu rök fyrir sínum málstað. Það vakti reyndar nokkra athygli mína hversu mikil umfjöllunin var og hve ólíka sýn menn höfðu á stöðu háskólamála eftir valdasetu Íhaldsins og Framsóknar. Í kosningabaráttunni þetta árið var áhersla flestra flokka (þar á meðal þíns flokks) á Lánasjóðinn og málefni honum tengd og er það sennilega ástæðan fyrir því að aðaláherslan (eina áherslan?) er lögð á hann í umfjölluninni um háskólamál í stjórnarsáttmálanum. Þessi áherslu má m.a. sjá í mjög góðum lánasjóðssamningi sem við Röskvuliðar náðum við stjórnvöld núna skömmu fyrir kosningar.  Ég sé ekki ástæðu til þess að rekja það í löngu máli hvað nákvæmlega starfsmenn skrifstofunnar gerðu til þess að koma málstað stúdenta á framfæri við stjórnmálaflokkanna, af mörgum hlutum var augljósasta dæmið að sjálfsögðu loforð.is og sá bæklingur sem sendur var út um hvippinn og hvappinn til að vekja athygli á baráttumálum stúdenta.   

Þetta er reyndar nokkuð fyndið að þú skulir ásaka okkur um að sitja með hendur í skauti í þessari kosningabaráttu. Á síðasta stúdentaráðsfundi vildi núverandi oddviti Vöku einmitt meina að miklar annir stúdentaráðs út af Alþingiskosningum væri ein af ástæðum þess að Vaka hafði ekki viljað bera hugmynd sína um undirskriftasöfnun upp við stúdentaráð og þess vegna farið af stað með hana sjálf.

 

En hvernig er það annars Árni, ertu ennþá á launum hjá Sjálfstæðisflokknum þegar þú skrifar svona stuðningsgreinar fyrir Vöku á blogginu þínu. Ertu að skrifa þetta sem varaformaður Heimdallar eða sitjandi varamaður Vöku í stúdentaráði?

Fjóla:

Auðvitað verða stjórnarsáttmálar alltaf nokkuð óskýrir. Hins vegar er það nú þannig að í þeim öllum eru alltaf nokkur atriði sem eru skýr og má benda á þó nokkur í þessum samning. Það hlýtur því að vera baráttumál Stúdentaráðs að sem flest atriði hvað varða hagsmuni stúdenta séu skýr í stjórnarsáttmálum. Þar sem að stjórnarflokkarnir töldu sér það ekki vera fært að vera skýrir með þetta atriði í sáttmálanum, e.t.v. vegna plásleysis, þá hlýtur það að teljast eðlileg krafa frá Stúdentaráði, sem berst fyrir hagsmunum stúdenta, að óska eftir því að þeir skýri þá afstöðu sína sem allra fyrst á þessu nýja kjörtímabili.

Það er mjög leiðinlegt að stúdentaráðsliðar Vöku virðast ekki átta sig á því að það er hlutverk Stúdentaráðs að berjast fyrir því að hagsmunum stúdenta sé sem best borgið, það er hlutverk annarra að okkar að hafa áhyggjur af því hvort að stjórnarsáttmálar séu langir eða stuttir.

Kveðjur :)

 Kveðjur :)

Þórir Hrafn Gunnarsson, 30.5.2007 kl. 16:54

4 Smámynd: Þórir Hrafn Gunnarsson

Árni: 

 

 

Ég verð að viðurkenna að ég sé ekki alveg að hinn nýi meirihluti hafi lítið gert til að vekja athygli á menntamálum í þessari kosningabaráttu. 

 

 

Þó að velferðarmálin hafi verið mest áberandi í kosningabaráttunni þetta árið þá voru menntamál nokkuð stór þáttur líka. Ég man t.d. ekki eftir því að áður hafi verið sérstakur borgarfundur í beinni útsendingu á Rúv eingöngu um menntamál. Ég man heldur ekki eftir því að forsætisráðherra þjóðarinnar hafi áður lagt mikla áherslu á það að afnema þurfi tekjuskerðinguna á námslánum  í setningarræðu sinni á landsfundi stærsta stjórnmálaflokks landsins. Einnig verður að benda á þá staðreynda að sú ákvörðun nýja meirihlutans í Reykjavíkurborg að gefa stúdentum frítt í Strætó næstkomandi vetur hlýtur að flokkast sem hluti af kosningabaráttunni fyrir Alþingiskosningar, það viðurkenna allir óvitlausir menn.

 

 

En almennt sé þá var það stjórnarandstaðan  semkom með mörg loforð um að bæta úr ástandi menntamála ,og þá einnig háskólamála, á meðan að stjórnarflokkarnir stærðu sig mikið af góðum árangri sínum í þeim málum. Margar greinar voru skrifaðar af talsmönnum og frambjóðenda allra flokka þar sem menn færðu rök fyrir sínum málstað. Það vakti reyndar nokkra athygli mína hversu mikil umfjöllunin var og hve ólíka sýn menn höfðu á stöðu háskólamála eftir valdasetu Íhaldsins og Framsóknar.

 

 

Í kosningabaráttunni þetta árið var áhersla flestra flokka (þar á meðal þíns flokks) á Lánasjóðinn og málefni honum tengd og er það sennilega ástæðan fyrir því að aðaláherslan (eina áherslan?) er lögð á hann í umfjölluninni um háskólamál í stjórnarsáttmálanum. Þessi áherslu má m.a. sjá í mjög góðum lánasjóðssamningi sem við Röskvuliðar náðum við stjórnvöld núna skömmu fyrir kosningar.

 

 

Ég sé ekki ástæðu til þess að rekja það í löngu máli hvað nákvæmlega starfsmenn skrifstofunnar gerðu til þess að koma málstað stúdenta á framfæri við stjórnmálaflokkanna, af mörgum hlutum var augljósasta dæmið að sjálfsögðu loforð.is og sá bæklingur sem sendur var út um hvippinn og hvappinn til að vekja athygli á baráttumálum stúdenta.  

Þetta er reyndar nokkuð fyndið að þú skulir ásaka okkur um að sitja með hendur í skauti í þessari kosningabaráttu. Á síðasta stúdentaráðsfundi vildi núverandi oddviti Vöku einmitt meina að miklar annir stúdentaráðs út af Alþingiskosningum væri ein af ástæðum þess að Vaka hafði ekki viljað bera hugmynd sína um undirskriftasöfnun upp við stúdentaráð og þess vegna farið af stað með hana sjálf.

 

 

En hvernig er það annars Árni, ertu ennþá á launum hjá Sjálfstæðisflokknum þegar þú skrifar svona stuðningsgreinar fyrir Vöku á blogginu þínu. Ertu að skrifa þetta sem varaformaður Heimdallar eða sitjandi varamaður Vöku í stúdentaráði?

Fjóla:

 

 

 

Auðvitað verða stjórnarsáttmálar alltaf nokkuð óskýrir. Hins vegar er það nú þannig að í þeim öllum eru alltaf nokkur atriði sem eru skýr og má benda á þó nokkur í þessum samning. Það hlýtur því að vera baráttumál Stúdentaráðs að sem flest atriði hvað varða hagsmuni stúdenta séu skýr í stjórnarsáttmálum. Þar sem að stjórnarflokkarnir töldu sér það ekki vera fært að vera skýrir með þetta atriði í sáttmálanum, e.t.v. vegna plásleysis, þá hlýtur það að teljast eðlileg krafa frá Stúdentaráði, sem berst fyrir hagsmunum stúdenta, að óska eftir því að þeir skýri þá afstöðu sína sem allra fyrst á þessu nýja kjörtímabili.

 

 

 

Það er mjög leiðinlegt að stúdentaráðsliðar Vöku virðast ekki átta sig á því að það er hlutverk Stúdentaráðs að berjast fyrir því að hagsmunum stúdenta sé sem best borgið, það er hlutverk annarra að okkar að hafa áhyggjur af því hvort að stjórnarsáttmálar séu langir eða stuttir.

 

 

 

Kveðjur :) 

Þórir Hrafn Gunnarsson, 30.5.2007 kl. 16:56

5 Smámynd: Þórir Hrafn Gunnarsson

Enter takkinn virðist vera að stríða mér eins og sést á fyrri tilrauninni (endilega eyða henni út)...  en síðustu tveimur efnisgreinunum er ætlað að vera svar við kommenti Fjólu...

kveðjur :)

Þórir Hrafn Gunnarsson, 30.5.2007 kl. 16:57

6 Smámynd: Árni Helgason

Sæll Þórir.

Ert þú í alvörunni að reyna að þakka Röskvu fyrir það að Rúv hafi haldið þátt um menntamál í aðdraganda kosninga? Ef þú horfðir á þennan þátt, sem var einn af fjölmörgum málefnaþáttum Rúv í kosningabaráttunni en ekki sérstakt framtak vegna þrýstings ykkar, sástu eflaust að ekki var t.d. minnst einu orði á hótanir stúdenta um framboð eða sjónarmið Stúdentaráðs yfir höfuð. 

Svo talarðu um setningaræðu formanns Sjálfstæðisflokksins, nýjar úthlutunarreglur Lánasjóðsins og ákvörðun meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í borginni um að gefa frítt í strætó, sem dæmi um árangur. Ef helsti árangurinn er að nást á þessum sviðum, þ.e. þar sem Sjálfstæðisflokkurinn kemur að málum, finnst þér ekki skjóta skökku við að stærstur hluti af stúdentaráðsliðum Röskvu hafi verið að vinna gegn Sjálfstæðisflokknum í þingkosningunum á sama tíma og hann reynir að eigna sér árangurinn og gera að sínum?

Árni Helgason, 30.5.2007 kl. 17:21

7 identicon

Þórir hefur þú heyrt orðatiltækið : Oft glymur hátt í tómri tunnu! Vilt þú að mark verði tekið á SHÍ?

 

Ég væri ekki í þessari sjálfboðavinnu ef sýn mín væri ekki sú að berjast fyrir hagsmunum stúdenta. Ég skil ekki að maður eins og þú, sem ég hef persónulega borið virðingu fyrir, ritir aðra eins vitleysu:

 

"Það er mjög leiðinlegt að stúdentaráðsliðar Vöku virðast ekki átta sig á því að það er hlutverk Stúdentaráðs að berjast fyrir því að hagsmunum stúdenta sé sem best borgið."

Fjóla (IP-tala skráð) 30.5.2007 kl. 17:38

8 Smámynd: Þórir Hrafn Gunnarsson

Árni:

"Menntamál komust varla á dagskrá fyrir þessar kosningar..."

Þessi atrivið voru einkum talinn upp til að svara þessari setningu, sem augljóslega var í engu samhengi við raunveruleikann. Sjalla dæmin voru einkum valin vegna þess að það er nú flokkurinn þinn og mér datt í hug að þú myndir tengja við þau.

Annars veist þú eins vel og ég að þegar að stúdentaráð þarf að þrýst á stjórnvöld þá þarf stór hluti vinnunar að fara fram á fundum við einstaka aðila, til að mynda frambjóðendur og embættismenn. Þess vegna finnst mér þessi bloggfærsla þín furðuleg, vera að ná ódýrum stúdentapólítskum stigum á hæpnum forsendum. Þú átt að vita betur.

Fjóla:

Auðvitað vil ég að mark sé tekið á SHÍ. Það er hlutverk SHÍ að þrýsta á um hagsmuni stúdenta og það er nkv. ekkert óeðlilegt við það að óska eftir því að óljós stjórnarsáttmáli verði skýrður. Stúdentaráð vill fá að vita hvaða stefnu stjórnarflokkarnir nýju hafa í þessu máli og það yrði meiriháttar afglöp að krefast skýringanna ekki sem fyrst.

Þessi krafa stúdentaráðs gerir ekki lítið úr trúverðuleika Stúdentaráðs, það að sitja á sér mundi hins vegar gera það.

Kveðjur :) 

Þórir Hrafn Gunnarsson, 30.5.2007 kl. 18:58

9 identicon

Krafan gerir það ekki, en gagnrýnin gerir það : Krafan var það eina sem vökuliðar komu inn í þessa ályktun.

Gott að þú ert sammála mér Þórir, talaðu nú við þitt fólk!

Fjóla (IP-tala skráð) 30.5.2007 kl. 20:36

10 Smámynd: Þórir Hrafn Gunnarsson

Haha... mér finnst nú reyndar gagnrýnin vissulega eiga rétt á sér líka....

Kveðjur :)

Þórir Hrafn Gunnarsson, 31.5.2007 kl. 00:14

11 identicon

I

Ég mótmæli harðlega fullyrðingu um að "stærstur hluti þeirra" (okkar) hafi unnið að því að koma Björgvini G til valda. Það er rugl og þú veist það vel.

II

Ég bendi á að þeir Röskvuliðar sem á annað borð eru virkir í landsstjórnmálum skipa sér nær allir á bekk með flokkum sem hafna skólagjöldum í háskólum (Framsókn, Samfó, VG - sjá nánar kosningastefnuskrár flokkanna). Það er eðlilegt þar sem Röskva er samtök félagshyggjufólks og þeir sem eru virkir innan Röskvu fara að starfa á vettvangi þar sem reynt er að auka vægi félagshyggju í samfélaginu. Ég geri ráð fyrir því að þeir Röskvuliðar sem þú vísar til séu virkir í pólitík til að berjast m.a. fyrir svipuðum gildum og þeir gera í Röskvu, m.a. jafnrétti (þar með talið jafnrétti til náms). Enda sést töluverður samhljómur með stefnu fyrrnefndra flokka og stefnuskrár SHÍ (sjá nánar á www.loford.is).

Flestir þeir Vökuliðar sem verða virkir í pólitík fara hins vegar í launuð störf hjá Sjálfstæðisflokknum og ert þú talandi dæmi og skrif þín skoðast í því ljósi. Þar með leggja þeir (og þú 8 klst. á dag) lið stefnu Sjálfstæðisflokksins í menntamálum sem verður að segja að gengur í mörgum meginatriðum gegn stefnu Vöku. Yfirlýst stefna Sjálfstæðisflokksins er að setja á skólagjöld í Háskóla Íslands. Að setja það í hendur Samfylkingarinnar, og hvað þá heldur Stúdentaráðs að koma í veg fyrir að þetta markmið YKKAR náist er náttúrulega bara fyndið.

III

Hvernig í ósköpunum geta þeir sem eru mótfallnir skólagjöldum kosið Vöku þegar reynslan sínir að fyrsta verk fyrrverandi forvígismanna Vöku (Árni H, Andri H, Erla Ósk svo dæmi séu nefnd) er að ráða sig í fulla vinnu við það að koma á skólagjöldum. Það er auðvelt að segja að stúdentapólitík snúist ekki um pólitík og að Vaka sé ópólitísk breiðfylking, en staðreyndirnar tala sínu máli.

Og þú talar um trúverðugleika...

IV

Þessi athugasemd er skrifuð í fullri vinsemd, en þú hlýtur að skilja að mér gremst þegar ég er sagður hafa stuðlað að fjölgum "skólagjaldasinna í ríkisstjórn", og "setið með hendur í skauti"...þegar það er einfaldlega rangt.

 V

Fjóla: "í raun [er] ekki við hæfi að stúdentaráð HÍ ætlaðist til þess að þar kæmi fram að ríkisstjórnin hefði þar klausu um að skjólagjöld yrði ekki tekin upp í opinberum Háskólum..."

og síðan: "Krafan var það eina sem vökuliðar komu inn í þessa ályktun."

Ha?

Kári Hólmar (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 13:03

12 identicon

Í upphaflegu ályktuninni var eingöngu gangnrýnt og fagnað. Óásættanlegt. Eftir breytingar kom krafan um svör sem er ákveðinn liður í hagsmunagæslu stúdenta, mjög gott, en Röskvuliðar urðu að halda vitleysunni inni.

Betra hefði verið að sleppa því að gagnrýna, þar sem kaflinn um menntamálin er til fyrirmyndar, og eingöngu biðja um skýr svör - þá væru stúdentar HÍ ekki að tala núna um þá bölvuðu vitleysu sem kemur alltaf frá stúdentaráði.....þökk sé Röskvu. Hugsa aðeins út fyrir boxið!

Lokaorð: Þetta var illa orðuð ályktun - ásamt því að vera okkur í stúdentaráði til skammar. Við skulum hætta að glymja eins og tómir belgir og láta verkin tala!

Fyrir ykkur sem enn ekki skiljið, kemur hér stutt dæmi:

Ég vil að biðlisti BUGL standi á núlli, ég myndi þó aldrei fara að gagnrýna eftirfarandi orð í sáttmálanum sökum þess að ekki var sérstaklega minnst á biðlista BUGL:

"Jafnframt verði aukinn stuðningur við langveik börn, börn með hegðunarvandamál, geðraskanir og þroskafrávik. Þegar í stað verði gripið til aðgerða til að vinna á biðlistum á því sviði. Hugað verði að foreldraráðgjöf og –fræðslu."

Fjóla (IP-tala skráð) 31.5.2007 kl. 15:52

13 Smámynd: Steindór Grétar Jónsson

Fjóla er náttúrulega bara fylgjandi skólagjöldum heima í stofu. 

Steindór Grétar Jónsson, 31.5.2007 kl. 17:17

14 Smámynd: Árni Helgason

Kári. Um góðan vilja þeirra sem starfa í Stúdentaráði efast enginn og ég veit að þú, eins og aðrir vilt gera þitt til að skólinn verði betri.

En ég velti því fyrir mér hvort það sé eðlilegt að formaður SHÍ og lánasjóðsfulltrúi ráðsins tjái sig með þeim hætti sem þær gerðu á landsfundi Samfylkingarinnar og í kosningablaði flokksins. Finnst þér það eðlilegt sjálfum?

Þú segir að það sé eðlilegt að Röskvuliðar beiti sér í flokkum sem hafi jafnrétti
til náms að leiðarljósi. Nú gera það að vísu allir flokkar en gott og vel, þú nefnir VG, Framsókn og Samfylkingu sérstaklega. En er það eðlilegt, jafnvel þó maður myndi samþykkja þessa forsendu sem þú gefur þér, þ.e. að þessir þrír flokkar eigi meira sameiginlegt með SHÍ en aðrir flokkar, að stúdentaráðsliðar velji að styðja sérstaklega við bakið á einum þessara þriggja flokka umfram hina? Hefði ekki verið eðlilegt að berjast fyrir því að VG og Framsókn yrðu líka kosin samkvæmt þessum rökum? Mér finnst persónulega að svona vangaveltur leiði menn fljótlega út í ógöngur, því þá fer þunginn í að elta tiltekna flokka að máli og aðra ekki.

Ég geri stóran mun á því hvað stúdentaráðsliðar gera annars vegar og fyrrverandi stúdentaráðsliðar hins vegar. Auðvitað vilja allir veg Háskóla Íslands sem mestan, hvort sem þeir sitja í ráðinu eða eru gengnir úr því. En þeir sem kjörnir eru í ráðið, sitja þar í umboði allra stúdenta hverju sinni. Það er ekki ósanngjörn krafa að þeir sinni fyrst og fremst störfum fyrir hönd stúdenta þennan tíma og ekki óeðlilegt að þeir haldi sig utan við flokksstarf á sama tíma, jafnvel þó þeim þyki mikill samhljómur milli sjónarmiða SHÍ og viðkomandi flokks.

 

Árni Helgason, 31.5.2007 kl. 22:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband