Stjórn hinna mörgu nafna

Nýju ríkisstjórninni er almennt vel tekið. Hún hlýtur nú þegar að eiga Íslandsmet í nafngiftum; Baugsstjórnin, Þingvallastjórnin, Sáttastjórnin og Uppstigningarstjórnin eru nokkur dæmi. Kannski að Stjórn hinna mörgu nafna sé rétta heitið.

Ég hef á tilfinningunni að þessi stjórn, hvað sem hún heitir, fái nokkuð gott svigrúm til athafna, að minnsta kosti fyrst um sinn. Hún mun setja á dagskrá verkefni sem hafa beðið alltof lengi, eins og t.d. endurbætur í heilbrigðis- og landbúnaðarmálum. Hún hefur traustan þingmeirihluta og stjórnarandstaðan er sundruð, samanstendur af flokkum sem munu t.d. mjög ólíklega geta stillt sér upp saman sem valkostur við ríkisstjórnina, eins og Kaffibandalagið gerði í vetur, að vísu með litlum árangri. Munurinn er þó fyrst og fremst sá að stjórnarandstöðuflokkarnir eiga ekki raunhæfan möguleika á að ná meirihluta saman á þingi í næstu kosningum. Eini möguleiki þeirra til að komast til áhrifa er að taka saman við annan ríkisstjórnarflokkinn og það hlýtur að hafa áhrif á málflutning þeirra á kjörtímabilinu. Gagnrýnin verður ekki jafnbeitt og ella.

Þó stjórninni sé almennt vel tekið heyrðust vissulega úrtöluspár. Ein þeirra kom frá Morgunblaðinu og gekk út á að Ingibjörgu Sólrúnu væri ekki treystandi - hún myndi búa til ágreining á miðju kjörtímabilinu við Sjálfstæðisflokkinn og freista þess að mynda þriggja flokka vinstristjórn með Framsókn og VG, þar sem hún yrði forsætisráðherra.

Það er að vísu spurning hve alvarlega eigi að taka skrif Morgunblaðsins í kringum kosningar. Blaðið tekur hálfgerðum hamskiptum. Í stað þess að leggja sig í líma við að vera hlutlaust, eins og stærstan hluta kjörtímabilsins, gerast leiðarahöfundar skyndilega málsvarar tiltekinna sjónarmiða í tilteknum flokki.

En hvað um það - ég held að það sé ekki tilefni til að hafa miklar áhyggjur af svona áformum. Sá flokkur sem myndi allt í einu "búa til" ágreining til þess eins að fá forsætisráðuneytið, fengi ekki háa einkunn hjá þjóðinni. Maður sér heldur ekki alveg hvernig það fer saman við boðaða endurhæfingu Framsóknarflokksins að hoppa upp í þriggja flokka vinstristjórn á miðju kjörtímabili - stjórn sem þeir voru ekki tilbúnir að fara í eftir kosningar og það með Vinstri grænum, sem þeir hafa lengi átt í hatrömmum deilum við.

Nýja ríkisstjórnin boðar ákveðnar breytingar. Sú stærsta felst eflaust í breytingunni á stjórnmálunum. Það hefur komist á friður í samfélaginu. Átakakúltúrinn og fylkingarnar sem stýrðu umræðunni áður eru núna vatn undir brúnni. Sumir sakna hins vegar svona átaka og eiga erfitt með að sætta sig við að þau séu liðin hjá. En ég held að langflestir kunni að meta þessa breytingu og að ráðamenn taki höndum saman og einbeiti sér að einhverju öðru en deilum og átökum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgitta Jónsdóttir

Ekki oft sem maður getur verið alveg sammála, en ég er það að þessu sinni:) Sérstaklega niðurlaginu.

Birgitta Jónsdóttir, 30.5.2007 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband