Stóryrði þingflokksformannanna um bankana

Skemmtileg uppákoma í sjónvarpssal í gær þegar Steingrímur J. fékk spurningu úr sal um ummæli Ögmundar um bankana og brást hinn versti við.

Að vísu fór spyrjandi ekki alveg rétt með þegar hann eignaði Ögmundi Jónassyni ummæli á þann veg að guð ætti að forða bönkunum ef hann yrði næsti fjármálaráðherra. Hið rétta er að Össur Skarphéðinsson lét þessi ummæli falla á heimasíðu sinni. Það sem hefur eflaust ruglað þann sem setti fram spurninguna er að Ögmundur skrifaði á heimasíðu sína ekki ósvipuð ummæli 1. nóvember sl. Þar skrifar hann:

Með einkavæðingunni, gróðahyggjunni og braskvæðingunni hefur íslenskt samfélag breyst – eða öllu heldur, því hefur verið breytt. Eignir samfélagsins hafa verið settar í hendur nokkurra einstaklinga, sem makað hafa krókinn. Misskipting og ranglæti þrífst og breiðir úr sér sem aldrei fyrr. Spurningin er þá eftirfarandi: Er jafnaðarsamfélaginu fórnandi fyrir 12 milljarða og nokkra stráka og stelpur í silkigöllum; þotuliðið? Eða eigum við að snúa spurningunni við: Er þotuliðinu fórnandi fyrir meiri jöfnuð og félagslegt réttlæti? Mitt svar er játandi, einnig svar Ólínu.

Þetta eru sem sagt kveðjurnar sem þingflokksformenn Samfylkingarinnar og VG senda til bankana. Ég hef aldrei skilið þessa hugsun, komandi frá flokkum sem kenna sig við félagshyggju og segjast vilja gera vel við þá sem á þurfa að halda í samfélaginu. Eftir að bankarnir voru einkavæddir færa þeir ríkinu margfalt meiri tekjur en áður. Í fyrra námu skatttekjur ríkisins af bönkunum rúmum 11 milljörðum króna. Árið 1993 námu þær 200 milljónum króna á ári. Hvort ætli tryggi nú frekar velferð í landinu, 11 milljarðar eða 200 milljónir? Hvort fyrirkomulagið er líklegra til þess að tryggja að bætt verði úr þeim vandamálum sem upp kunna að koma? Svona tal og fullyrðingar eru auðvitað út í bláinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Örn Gíslason

Össur var nú greinilega að vanda sig heilmikið í kosningasjónvarpinu á Stöð 2 í kvöld þegar hann talaði um þetta. En bankarnir eru samt greinilega ekki meira en það sem hann kallaði sjálfur „mjólkurkýr,“ ekki t.d. vinnustaðir fyrir stóran hóp hámenntaðs fólks.

Einar Örn Gíslason, 2.5.2007 kl. 20:44

2 identicon

Sveinn: hvað fáum við í vexti af innistæðum okkar í bönkunum? Langtum meira en í helstu viðskiptalöndum okkar. Bankarnir og sparisjóðirnir (gleymist alltaf að minnast á þá) ákveða ekki vextina heldur Seðlabanki Íslands og háir stýrivextir er tímabundið fyrirbæri. Eftir 1-2 ár verða stýrivextir orðnir eðlilegir og þá mun enginn muna eftir "vaxtaokri" bankanna heldur byrja að kvarta yfir því hversu innlánsvextir eru orðnir lágir.

Óli (IP-tala skráð) 3.5.2007 kl. 09:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband